laugardagur, febrúar 05, 2005

Ennþá lasin

Jæja minns er ennþá lasin og farin að hætta að finnast þetta fyndið,búin að vera lasin síðan á mánudagsnótt og er núna geggt slöpp reyndar ekki með hita bara nokkrar kommur svo í gær þá hélt ég að ég myndi nú hósta úr mér líftóruna var með svo þurran hósta að ég var alveg að kafna og ekki nóg með það að þá tókst mér að smita Davíð hann er núna kominn með næstum 40 stiga hita og drulluslappur.

Vaknaði svo í morgun alveg að farast í bakinu eftir hóstaköstin og var ekkert skárri í dag fór í apótekið eftir nausynjum til þess að lifa daginn af og svo var Hrefna svo elskulega að koma með hitlastillandi,verkjastillandi og hjálpar til að sofna töflur sem að ég vona að eigi eftir að bjarga hjá mér nóttinni.

Annars er nú lítið svo sem að frétta Gulli og Inga ætluðu að koma til mín í kv þannig að ég skutlaði Davíð greyjinu til mömmu sinnar svo að hann fengi frið í kvöld en viti menn hmm
SKO... í dag þá hringdi Gulli og sagði að hann myndi leggja af stað um 15.30 oki alltí lagi svo hringdi ég í hann um 17 og þá sagði hann að þau væru bara að leggja í hann oki allt í lagi með það svo var mér nú aðeins farin að lengja eftir þeim að þá ákvað ég nú að hringja en nei nei slökkt á símanum hjá Gulla og Inga svarar ekki hmms en svo hélt ég bara áfram að hringja og loksins svaraði einhver og þá voru ekki lögð af stað og ælta líklegast bara ekkert að koma VÁ þvílíkir vinir og núna sit ég bara alein heima að mygla og drepast úr flensu og leiðindum SPENNANDI nei held ekki.

En ég fer þá líklegast bara snemma í háttinn hefði nú kannski alveg getað farið upp í bústað í dag svosem en var náttla alltaf að bíð eftir þeim,svona er þetta víst það er svo sem einn kostur við þetta allt saman mar helst þó allavega edrú þessa helgi hehe.

OVER AND OUT...

Engin ummæli: