föstudagur, mars 04, 2005

It´s friday night and I feel allright

Hæbbs hvað segjist Idolið búið og kosningin eftir og DJÖ... vona ég að Davíð detti út er engan veginn að fúnkera hann mér finnst að Hildur eigi að vinna og Heiða eigi að vera í 2 sæti.
Annars er bara allt það besta að frétta bjór og Idol eiga vel saman og svo er Laura að koma að spila með mér,Davíð og Kalla og svo er aldrei að vita nema að við færum okkur til Halla og co,reyndar þarf mar að vera rólegur í kvöld er víst að fara á kúttmaga kvöld í Garðinum á morgun fer á matinn og skemmtiatriðin Árni kallinn Johnsen mætir á svæðið og tryllir landann þetta verður bara gaman.

Þannig jamms á morgun verður heljarinnar fyllerí hjá manneskjunni sem að ætlaði sko að vera edrú þessa helgi og vinna í fermningarveislu en komst af því að ég fæ að vera gestur ef að ég vil þannig að ég ætla bara að hrynja í það.

Perla greyjið er svona að jafna sig eftir aðgerðina sem að hún fór í gær reyndar sefur hún bara og sefur og vil bara helst liggja inni í herbergi og hafa það kósý sem er nú að búast hún átti að fá 1/2 verkjatöflu seinnipartinn í dag en Davíð gaf henni óvart alveg heila en það er svosem allt í lagi en jæja Laura er komin best að hætta.

OVER AND OUT..

Engin ummæli: