Jæja gott fólk hvað segjiði svo gott í dag?? Allt fínt bara að frétta hérna ég er eila bara ekkert búin að vera á netinu alla vikuna og ekki nennt að blogga.Hugsa að mar verði nú bara edrú þessa helgi svona til tilbreytiningar nú enn að jafna sig eftir síðustu helgi hehe já hún var all svaðarleg já heldur betur hugsa að ég væri nú alveg til í að gera það aftur.
Annars er bara rólegheit þessa helgina spara fyrir næstu helgi,stefnan er tekin á stelpuferð vestur ekki ákveðið hvort að farið verður á fös eða lau það er svokölluð Jörvagleði og allir spenntir að fara er búin að panta mér gistingu ef ske kinni að ég færi annars óákveðið.
Var nú að frétta áðan að það er fegurðarsamkeppnin á morgun og það er víst 2000kr aðgangseyrir fyrir kk og 1500 fyrir kvk og lítill fugl sagði mér að það væri svo frír bjór fyrir kvenfólkið en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það:)
Annars er ég bara búin að vera vinna og vinna nema í kvöld þá ákvað ég að vera í afslöppun til að koma stofunn i í lag ég og Davíð vorum að kaupa lazy-boy sófa og dísus hvað hann er bara þæginlegur en svo tekur vinnan bara við aftur á morgun er að reyna vera dugleg til að komast á jörvagleði og svo líka til að geta tekið mér sauðburðarfrí til að fara til Erlu:) hlakka ekkkert smá mikið til en jæja veit ekki hvað meira skal segja ætla fara horfa á punk´d.
OVER AND OUT..
Engin ummæli:
Skrifa ummæli