föstudagur, júní 24, 2005

Er ekki málið

að blogga aðeins er bara búin að vera alltof löt að setjast niður í tölvuna mína undanfarið.Allt og ekkert svosem að gerast.Fórum á AKureyri síðustu helgi það var alveg fínt sko en mér fannst alveg helv... illa skipulögð þessi blessaða dagskrá sem að var í boði.Við lögðum af stað á föstudags morgun var nú ekki alveg að nenna því að vakna sko en það var nú fínt að komast svona aðeins útúr bænum en samt ég er búin að komast af því að ég og Davíð erum sko engar útilegu týpur það er alveg á hreinu hvert sem að við förum alltaf á fyrsta degi hugsum við æji eigum við ekki bra að skella okkur heim í fyrramálið,en svo ákváðum við nú að vera lengur þar sem að það var nú sól á laugardeginum.Við gistum hjá Agnesi frænku og talandi um steikt lið já æji talið bra við mig ef að þið viljið details þetta bjargaðist nú alveg þægilegt að vera með inniaðstöðu hefði nú verið til í að vera upp á tjaldsvæði með öllu liðiðnu ef að það hefði verið hlýrra úti það er svo skítkalt út mar á nóttinni að mar bra nennir ekki að sofa í tjaldi en það var held ég mun skemmtilegra á svæðinu uppfrá en niðurfrá.
Annars var nú gaman að fá að sjá svona menningu annað en Traffic;) þó mar er nú farinn að sakna þess að koma þar inn hugsa að mar kíkji þar um helgina.Það var bara ágætis skemmtanalífið þarna og bara fínt fólk þó svo að ég vilji nú meina að norðlendingar séu sér þjóðflokkur en það er nú bara mín skoðun.Any way long story short þá var þetta bara svona ágætt hef skemmt mér betur því miður.

Allavega annar bra fínt ég og Hrefna frænka búnar að vera geggt duglegar að fara með hundana á Seltjörn og sonna svo skelltum við okkur austur í gær miðvikudag klukkan náttla yfir miðnætti þannig að þá er komið fös samkvæmt en allavega í gær þá fór ég og Davíð að skutla Hrefnu að sækja bílinn sinn þar sem að hann bilaði þegar að við skelltum okkur á Flúðir ekki alls fyrir löngu þannig að hann var loksins tilbúinn og þetta kostaði nú sitt en svona getur þetta verið.Það var ekkert smá gjeggjað veðrið á leiðini að við vorum að kafna skelltum okkur á coltinu gengur ekkert að selja hann vill einhver kaupa!!!!!! Annars er nú ansi fínt að hafa bíl undir hundana þar sem að ég er svo búin að vera trassa það að láta pabba smíða búrið handa mér í bílinn,það er nebbla ekki hægt að hafa þá aftur í þar sem að sætin soga í sig hárin.
Svo var stoppað í Þrastarlundi og fengið sér hressingu og svo ákváðum við að skella okkur í labbitúr og það var bara ýkt gaman en var nú kannski ekki í bestu skónum fyrir það en svona er þetta svo er bra búið að vera vinna og sonna.

Svo er það að við ákváðum í dag að fara kaupa slátturvél þetta var nú ekki alveg að ganga upp sko stráin voru nánast búin að ná mér og ekki er ég nú voða há í loftinu en svo gekk þetta bra vel sko við fengum svo lánaðan orf hjá Hrefnu og Davíð var með hann og ég með slátturvélina og svo erum við nú soddann snillar að hálfa væri hellingur hann Davíð minn er nú ekki mikið fyrir að lesa leiðbeiningar og sko þannig var að mín var send að kaupa bensín jú jú og allt í lagi með það sko og þar sem að vélin er nú ný að þá náttla þurfti að setja olíu á vélina og hvað gerist hmm við settum nú bara olíu á hreinsikerfið já ég veit algjörir lúðar og svo skildum við ekkert í því að það virkaði ekki vélin og mín hringdi nú upp í húsó ekki sátt að nýja vélin mín virkaði ekki og það kom einhver kall og honum leist nú ekkert á þetta en allt er gott sem endar vel þetta gekk fyrir rest það var bara smá eða reyndar feitur mökkur sem að kom úr vélinni í byrjun en svo bara allt í goodý ;) og mín fékk að slá með vélinni ýkta gaman eða það finnst mér svo var svo fyndið þegar að Davíð var búinn að nota orfinn stóð hann eikka svona hjá mér og mín að slá og þá náttla þurftu ýkt margir að labba framhjá eða keyra og hað ætli fólk haldi að tjellan sé bra að slá og kallinn horfir á.

Úff þetta er að verða helv... langt hjá mér og mín rétt að byrja hehe,já svo er það helgin framundan bara mega djamm er að fara í þrítugsammili hjá Maggý bolla og alles í boði held ég að það verði nú gaman.Þekkji reyndar voða fáa úr hennar vinahóp en ég hef nú hana Lauru mína þarna til að halda mér selskap en ég meina frítt að drekka mar neitar því nú ekki.En gallinn Halli og Krissa eru að fara úr bænum og reyndar mikið af fólki held nú að Jóhanna og Hildur fái sér nú að tjútta um helgina og vonandi þá í víkinni sko kef á eftir að hafa samb.við þær náttla langt síðan að ég hef getað djammað með þeim þar sem að Jóhanna er farin að vinna aðra hvora helgi algjör bömmer en mar slakar þá aðeins á í djamminu er þaggi stelpur;)
Svo fer hún Fanney mín að koma heim á sunnudaginn bara búin að vera á rúntinum í ameríkunni í 2 vikur örugglega ýkt nice.

Já gleymdi mar á Akureyri hitti ég Ósk frænku og hún sagði mér að Þórhallur frændi væri á svæðinu og lét mig hafa nýja númerið þeirra og mín hringdi og hringdi á laugardeginum en nei enginn svaraði alveg týbýskst en svo loksins þegar að ég náði á þau þá voru þau lögð af stað til Blöndósar en svona er þetta var farin að hlakka geggt til að hitta litlu frænku mína sem að ég hef aldrei séð dauðskammast mín nú fyrir að vera ekki búin að fara í heimsókn til þeirra þar sem að ég og Þórhallur vorum nú alltaf saman þegar að við vorum lítil en ég verð bara að kíkja á þau í bæinn og sjá littlu rúsluna þeirra.

Jæja búin að blaðra svo mikið að ég er örugglega að gleyma einhverju jú já ég er að fara aftur upp á Litla hraun á laugardag að heimsækja Tien núna fer ég Thuy,Berglind og Magnea vona að þetta verði fínt og kannski ekki stoppa of lengi þar sem að mín þarf nú að hafa sig til fyrir djammið mar þetta byrjar nebbla klukkan 8 hjá Maggý og já svona í leiðinni þá auglýsi ég eftir einhverjum til að slétta á mér hárið á laugardag :) hugsa reyna fara í bæinn á morgun og kaupa mér kannski ný föt og eikka ef að mar sér eikka sniðugt þar sem að mar hefur ekki tíma á laugardaginn kannski mar dragi bara tengdó með sér eða eikka.

Ætli þetta sé ekki gott í bili og já á móti sól takk fyrir diskinn ;)
P.s er búin að setja inn annamyndalink:)

OVER AND OUT..

Engin ummæli: