Höfnunarlínur kvenna!!
10. Ég lít á þig sem bróður = Þú minnir mig á nördann í "Deliverance"
9. Það er dálítill aldursmunur á okkur = Ég vil ekki vera með manni sem gæti verið pabbi minn
8. Ég hef ekki "þannig" áhuga á þér = Þú ert ljótasta fífl sem ég hef nokkurn tíma séð
7. Líf mitt er of flókið núna = Ég vil ekki að þú eyðir allri nóttinni hjá mér annars gætiru heyrt símtölin frá öðrum mönnum sem ég er með.
6. Ég á kærasta = Ég vil frekar köttinn minn en þig
5. Ég fer ekki út með mönnum þar sem að ég vinn = Ég myndi ekki fara út með þér þó að þú værir í sama "sólkerfi", hvað þá í sömu byggingu
4. Það ert ekki þú, það er ég = Það ert þú
3. Ég vil einbeita mér að starfsferlinum = Jafnvel eitthvað jafn leiðinlegt og þreytandi og vinnan mín er betra en að fara út með þér
2. Ég er hrifin af öðrum
Þó að þú værir síðasti maðurinn á jörðinni þá myndi ég ekki fara út með þér
1. Verum bara vinir
Ég vil að þú sért hérna svo að ég geti sagt þér í ítrustu smáatriðum um alla hina mennina sem ég hitti og sef hjá.
Það er þetta karlmannslega sjónarhorn.
Og svo hafa karlmenn líka svör við öllu!
Höfnunarlínur karla
10. Ég lít á þig sem systur = Þú ert ljót
9. Það er dálítill aldursmunur á okkur = Þú ert ljót
8. Ég hef ekki "þannig" áhuga á þér = Þú ert ljót
7. Líf mitt er of flókið núna = Þú ert ljót
6. Ég á kærustu = Þú ert ljót
5. Ég fer ekki út með konum þar sem að ég vinn = Þú ert ljót
4. Það ert ekki þú, það er ég = Þú ert ljót
3. Ég vil einbeita mér að starfsferlinum = Þú ert ljót
2. Ég er hrifin af annarri = Þú ert ljót
1. Verum bara vinir = Þú ert hrikalega ljót
Engin ummæli:
Skrifa ummæli