miðvikudagur, apríl 28, 2004

Góða kvöldið

Hæhæ og gott kvöld hvað er svo að frétta?? Það er nú ekkert mikið að frétta ég er bara ekkert spennandi búin að vera gera nema náttla vinna eins og venjulega og já liggja aðeins bara í leti og hafa það gott.Var rosa dugleg um helgina datt ekkert í´ða eins og ég er nú oftast vön að gera um helgar.Fékk digital myndavél um helgina ýkt montin bara búin að vera á leiðinni að kaupa svoleiðis umm síðan í desember.
Svo fyrr í kvöld fengum við einhvern helv.... vírus í tölvuna en kallinn virtist nú eikka hafa lagað það allavega er ég búin að geta verið á netinu síðan ég kom heim úr vinnunni sem er gott mál því ég er nú yfirleitt eitthvað að nördast fram eftir nóttu á netinu.Einu sinni þá vissi ég varla hvað það var að kveikja á tölvu en í dag hugsa ég að ég ætti nú frekar erfitt að lifa án hennar jú náttla stundum gott að fá smá pásu en ekki of lengi. Hérna er einn góður

-----------------------------------------------------
Sverrir fékk páfagauk í afmælisgjöf og komst fljótt að því að sá var með afbrigðum skapvondur og orðljótur. Sverrir gerði allt sem honum datt í hug til að venja fuglinn af þessum ósið, hann notaði sjálfur eintóm kurteisisorð, spilaði hugljúfar
ballöður fyrir hann og reyndi með því að sýna honum gott fordæmi. Ekkert gekk upp. Hann prófaði að skamma fuglinn sem svaraði honum fullum hálsi. Hann hristi búrið en gaukurinn varð bara enn skapverri og dónalegri við það. Sverrir vissi nú ekki sitt rjúkandi ráð og í örvæntingu sinni tók hann fuglinn og setti hann í frystikistuna. Um stundarsakir heyrðust ógurleg læti úr kistunni, fuglinn sparkaði og öskraði og bölvaði -- en skyndilega datt allt í dúnalogn og ekki eitt einasta hljóð heyrðist í langan tíma. Sverrir fór nú að óttast að hann hefði meitt fuglinn og flýtti sér að opna kistuna. Páfagaukurinn var hins vegar hinn rólegasti, steig upp á útrétta hönd Sverris og sagði: "Að undanförnu hefur hegðun mín og orðbragð ekki verið til eftirbreytni og sennilegast orðið til að móðga þig. Ég mun þegar í stað taka mig rækilega á og breyta þessari hegðun minni. Mér þykir verulega leitt hvernig ég hef látið og mig langar til að biðja þig innilega fyrirgefningar." Sverrir varð orðlaus af undrun og var um það bil að fara að stama upp spurningu um hvað hefði valdið breytingunni þegar páfagaukurinn hélt áfram: "Bara svona fyrir forvitnis sakir, hvað gerði kjúklingurinn eiginlega?"

ahahaha Góða nótt

Engin ummæli: