laugardagur, maí 08, 2004

AHAHAHAHAHA nokkuð nettur

Ungur maður ætlaði að gleðja kærustuna sína á afmælisdaginn hennar, þau
höfðu ekki verið lengi saman og eftir dágóða umhugsun þá ákvað hann að
kaupa handa henni loðfóðraðar lúffur-það væri rómantísk gjöf en ekki
of persónuleg. Hann fór í bæinn með yngri systur kærustunnar og hún
hjálpaði honum að velja lúffurnar, sjálf keypti systirin sér nærbuxur.
Afgreiðslukonan ruglaði saman pökkunum þegar hún pakkaði hlutunum inn
og ungi maðurinn sendi óvart nærbuxurnar til kærustunnar án þess að
vita af því. Hann skrifaði hjartnæmt bréf til hennar sem hann lét
fylgja pakkanum og að sjálfsögðu ætlaðist hann til þess að hún læsi
bréfið áður en að hún tæki utan af gjöfinni. Bréfið var svohljóðandi:


"Ég valdi þessa gjöf vegnað þess að þú ert vanalega ekki í svona þegar
við förum saman út á kvöldin. Ég hefði valið aðeins lengri ef systir
þín hefði ekki verið með mér,en hún er alltaf í svo litlum sem
erfiðara er að fara úr... Liturinn er dáldið viðkvæmur,
en afgreiðslukonan sýndi mér sitt eintak sem hún hafði verið í 3 vikur
samfleytt án þess að sæist á þeim, ég bað hana að máta eintakið þitt og
hún var virkilega sæt. Ég vildi óska að ég fengi að klæða þig í
gjöfina í fyrsta skipti vegna þess að ég er viss um að aðrar
hendur munu snerta hana áður en að ég fæ tækifæri til að hitta þig
aftur... Þegar þú ferð úr mundu þá að blása í þær áður en þú leggur
þær frá þér vegna þess að þær verða yfirleitt dáldið rakar... Ímyndaðu
þér bara hve oft ég á eftir að kyssa gjöfina á næstu mánuðum, ég vona
að þú verðir í þeim á
laugardagskvöldið... Ástarkveðja.
p.s. Nýjasta tískan er að bretta aðeins upp á þær og láta þetta loðna
sjást!

Engin ummæli: